Asnaríkisstjórn

Hvaða raunsæi sjá ráðerrar og þessir bjánar í þessari blekkingarríkisstjórn í því að borga af húseignum, bílum og öðru þegar lánið er orðið miklu hærra en veðið í eignunum sjálfum! Það sér enginn heilvitamaður vit í að borga skuldir sem aldrei munu greiðast niður! Steingrímur J. Sigfússon, þú ert bjáni og allir aðrir í núverandi ríkisstjórn! Skammist ykkar!
mbl.is Háskalegt að borga ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Okay er stúlkan látin eða????

Ég skil ekki fréttina alveg.. fyrirsögnin segir að stúlkan sé látin.. en seinna í fréttinni ER hún tvítug og fjarlægja þurfti hendur hennar og fætur vegna lífshættulegrar bakteríusýkingar... Er hún dáin eða komst hún lífs af?

Það þarf að vanda aðeins orðaval og frágang svo að fréttin komi rétt til skila.


Jólin í júní?

Jæja fyrst svo sér þá er jóladagurinn þann 17.júní en ekki 25 des.. pakkið jóladótinu og setjið það upp á þjóðhátíðardag Íslendinga? hvernig væri það? haha
mbl.is „Jesús fæddist 17. júní“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ríkisstjórnin er að gera sitt besta.

Þessi ríkisstjórn er að sjálfssögðu að reyna að gera sitt besta til að halda gjaldeyrisforðanum inni í landinu! Hvað er rangt við að banna fólki að taka út fleiri milljónir og gersamlega blóðmjólka þjóðina? 

Slakiði á, þið fáið að fara til útlanda og fáið að fara í nám. Það er ekki verið að hefta almenning um slíkan gjaldeyri.

Ég er sjálf stödd í Thailandi um þessar mundir og kem ekki heim fyrr en í lok apríl. Ef íslenska krónan væri ekki svona veik þá væri ég ekki að hafa áhyggjur af peningnum sem ég á inni í Kaupþingi en það hef ég núna. Auðvitað er maður spældur og sár. Það eina sem maður sér er að krónan veikist stanslaust en ég einfaldlega get ekki trúað því að ríkisstjórnin sé að gera nokkuð annað en að reyna bjarga þjóðinni úr þessum hremmingum!

Ég er hjartanlega sammála því að dagar Davíðs Oddssonar eru löngu taldir en ég er ekki sammála því að ríkisstjórnin eigi að víkja hið snarasta og ganga eigi til kosninga.
Í aðstæðum sem þessum eigum við Íslendingar að standa saman sem þjóð. Ekki ópa og æpa og kenna bara einhverjum um. Það sá enginn þetta ástand fyrir ári. Það ætlaði sér ENGINN, ENGINN að koma þjóðinni í þessa stöðu sem hún er í núna. Við getum ekkert skipt um stjórn bara einn tveir og tíu. Það er bæði tímafrekt og dýrt auk þess er fólk svo reitt og bælt að ég einfaldlega held að það yrðu tóm mistök að kjósa nýja ríkisstjórn undir þessu andrúmslofti sem ríkir yfir þjóðinni um þessar mundir.

Hvað varðar Davíð og stjórn Seðlabanka Íslands, þá er mín skoðun sú að hún eigi að víkja eins og skot. Ráða á hagfræðinga og fólk sem er menntað í þessa stöðu. Ekki stjórnmálafræðing með 40 ára próf í lögfræði! 

 

 

 

Ég vil bara koma skoðunum mínum á framfæri og ég bið ykkur helst að ráðast ekki á mig þó að þær falli ykkur ekki í geð. Þetta eru mínar eigin skoðanir og ég er ekki að setja neitt út á skoðanir annarra.


mbl.is Frumvarp um gjaldeyrisviðskipti lagt fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Elín Kristjánsdóttir

Höfundur

Elín Kristjánsdóttir
Elín Kristjánsdóttir
Nemi í fríi úti í Thailandi
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband